Vann ég?
Undir skafflötunum á Happaþrennunum er svokallaður QR kóði. Hér fyrir neðan má horfa á myndband sem útskýrir notkun hans.
Kaupendur geta með einföldum hætti staðfest sjálfir með snjallsíma eða spjaldtölvu hvort það sé vinningur á Happaþrennunni þeirra eða ekki. Sjá myndband hér. Kaupendur verða að hala niður QR lesara (QR droid eða öðru svipuðu forriti) í símann/spjaldtölvuna til þess að þetta virki. Þegar búið er að kveikja á forritinu er símanum/spjaldtölvunni beint að QR kóðanum á miðanum og kóðinn skannast inn í tækið. Þá kemur upp skjámynd sem segir til um hvort það sé vinningur á miðanum eða ekki og ef svo er þá hversu hár hann er.
Athugið að það þarf alltaf að framvísa upprunalegu Happaþrennunni til að fá vinning greiddan út.