Hjálp!
Við skulum reyna að útskýra fyrir þér hvernig þetta virkar nú allt saman =)
Verð á einföldum miða er 1.600kr.
Trompmiði, sem hefur fimmfalt vægi, kostar 8.000kr.
Öll miðakaup á vefnum eru áskriftarkaup.
Þú kaupir miða með því að fara inn á forsíðu HHÍ þ.e "Happdrættismiðar". Þar geturðu skoðað hvaða miðanúmer eru laus og leitað eftir því sem þér lýst vel á. Þegar óskanúmerið er fundið þá einfaldlega smellir þú á það og velur bókstaf við hæfi. Við það flyst miði í kaupkörfu og með því að smella á "Áfram" hnappinn í kaupkörfunni getur þú lokið við kaup á miðanum. Það er gert með því að skrá sig inn á Mínar síður og ganga frá greiðslu þar.
Öll miðakaup eru áskriftarkaup og segja þarf upp áskrift með mánaðar fyrirvara.
Til þess að kaupa miða eða skoða þín mál hjá Happdrættinu þá þarftu að skrá þig inn á Mínar síður. Það er einfalt að skrá sig inn og eru tvær leiðir í boði. Í fyrsta lagi geturðu notað rafræn skilríki en einnig geturðu búið til aðgang með því að nota kennitöluna þína og færð þá lykilorð sent í netbankann þinn. Með því að nota þær upplýsingar sem þú finnur í netbankanum geturðu virkað aðganginn þinn að Mínum síðum og valið þér lykilorð.
Með því að smella á hlekkinn "Innskráning" sem er niðri í vinstra horni síðunnar, geturðu skráð þig inn á Mínar síður.
Ef þú vilt taka áskriftarmiða úr skuldfærslu þá skráir þú þig inn á Mínar síður og eru þá tvær leiðir í boði.
(1) Taka miða úr skuldfærslu - miði verður ekki skuldfærður aftur en þú átt rétt til miðanúmersins næstu 4 útdrætti á eftir en ef miðinn hefur ekki verið endurnýjaður á því tímabili þá er hann settur aftur í sölu.
(2) Segja upp miða - miði verður ekki skuldfærður aftur og þú hættir með miðann sem er settur aftur í sölu í kjölfarið.
Uppsagnarfrestur á áskrift er 1 mánuður. Því þarf að segja miða upp eigi síðar en á útdráttardegi fyrir næsta mánuð á eftir.
Þegar valið er happdrættisnúmer þá fylgir líka að það þarf að velja bókstaf.
Bókstafirnir eru E, F, G, H og B.
Þeir hafa mismunandi gildi í útdráttum og kosta mismikið.
-E, F, G og H eru einfaldir miðar og hafa því allir sama vægi og kosta allir það sama.
-B er tákn trompmiða. Trompmiðar eru fimmfaldir og kosta því fimm sinnum meira en einfaldur miði.
Trompmiðar hafa mismunandi vægi í útdráttunum hjá okkur.
Sá sem á B miða í Aðalútdrætti fær fimmfalda vinningsupphæð í sinn hlut. Í Milljón á mann hefur B miði fimmfalt vægi á við einfaldan miða. Það þýðir að númerið er fimm sinnum í pottinum en vinningsupphæðin sem kemur á miðann er sú sama á einfaldan miða og trompmiða. Hið sama gildir um Milljónaveltuna en þar er B miðinn einnig fimm sinnum í pottinum og því fimm sinnum líklegri en einfaldur miði til að hljóta vinning.
Þeir sem eru svo heppnir að fá vinning í útdráttum fá vinninginn greiddan inn á bankareikning í sínu nafni 3-5 virkum dögum eftir útdrátt.
Fyrir þá sem vilja kynna sér vinningslíkur í happdrættinu þá má skoða eftirfarandi skjal